19.08.26 - 20:20
Ívan Guðjón Baldursson
„Carrick mun ná því besta úr Rashford"

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Fyrrum fótboltamaðurinn Ashley Young telur Michael Carrick vera tilvalinn til þess að ná því besta úr kantmanninum Marcus Rashford, sem gæti spilað sinn fyrsta keppnisleik fyrir Manchester United eftir meira en eins og hálfs árs fjarveru.

TENGT EFNI
Sneri aftur í United treyjuna eftir tveggja ára fjarveru
Nýtt tímabil í ensku úrvalsdeildinni hefst um helgina og verður áhugavert að sjá hvort Rashford komi við sögu eftir að hafa leikið á láni hjá Barcelona og Aston Villa síðustu 18 mánuði.
Young, sem lék með Man Utd frá 2011 til 2020, hefur mikla trú á að Rashford geti næð fyrri hæðum með Rauðu djöflunum. Á sínu besta tímabili skoraði sóknarmaðurinn 30 mörk í 56 leikjum fyrir félagið, undir stjórn Erik ten Hag tímabilið 2022-23.
„Þegar hann er í gírnum þá er enginn kantmaður jafn góður og Marcus Rashford," segir Young. „Ég var heppinn að fá að spila fyrir aftan hann og ég man hvað það var erfitt að mæta honum á æfingum.
„Hann er að spila fyrir réttan þjálfara núna, Michael Carrick mun ná því besta úr honum. Ef hann nær að halda hausnum á réttum stað þá gæti hann reynst algjör lykilmaður í vetur. Hann sannaði það hjá Barcelona að hann er ennþá góður í fótbolta."