Fotbolti.net
19.08.26 - 21:41
Ívan Guðjón Baldursson

Meistaradeildin: Willum horfði á tap - Auðvelt fyrir Celtic

Meistaradeildin:  Willum horfði á tap - Auðvelt fyrir Celtic
Canon

Mynd: EPA

Fjórir leikir fóru fram í umspili um sæti í deildarkeppni Meistaradeildarinnar í kvöld og var Willum Þór Willumsson ónotaður varamaður í tapi hjá NEC Nijmegen á heimavelli.
Nijmegen tók á móti Bodö/Glimt frá Noregi og lenti þremur mörkum undir áður en Clement Bischoff minnkaði muninn, svo lokatölur urðu 1-3.

Nijmegen er því í slæmri stöðu fyrir seinni leikinn en getur huggað sig við að spila í Evrópudeildinni í haust ef ekki tekst að vinna upp tveggja marka mun á afar erfiðum útivelli.

Skotlandsmeistarar Celtic eru þá í góðri stöðu eftir sannfærandi sigur á LASK Linz frá Austurríki.

Camilo Durán skoraði tvennu og átti Benjamin Nygren mark og stoðsendingu í 3-0 sigri. Kasper Högh lék allan leikinn í fremstu víglínu en komst ekki á blað.

Hapoel Be'er Sheva, sem sló Víking R. naumlega úr leik í forkeppninni, hafði þá betur gegn Sabah Baku frá Aserbaídsjan. Lokatölur urðu 2-1 en Ísraelarnir eiga eftir að spila seinni leikinn á útivelli.

Að lokum gerðu Slovan Bratislava og NK Celje jafntefli í Slóvakíu.

NEC Nijmegen 1 - 3 Bodo-Glimt
0-1 Sondre Fet ('25 )
0-2 Andreas Helmersen ('44 , víti)
0-3 Haitam Aleesami ('50 )
1-3 Clement Bischoff ('85 )

Celtic 3 - 0 LASK Linz
1-0 Benjamin Nygren ('26 )
2-0 Camilo Duran ('38 )
3-0 Camilo Duran ('67 )

Hapoel Beer Sheva 2 - 1 Sabah FK
0-1 Veljko Simic ('6 )
1-1 Javon East ('43 )
2-1 Igor Zlatanovic ('79 )

Slovan 1 - 1 Celje
1-0 Roman Cerepkai ('15 )
1-1 Milot Avdyli ('41 )
Meistaradeildin:  Willum horfði á tap - Auðvelt fyrir Celtic
Canon

Mynd: EPA

Meistaradeildin:  Willum horfði á tap - Auðvelt fyrir Celtic
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.