Fotbolti.net
19.08.26 - 21:19
Ívan Guðjón Baldursson

Spánn: Glæsimörk er Atlético sigraði nýliðana

Spánn: Glæsimörk er Atlético sigraði nýliðana
Canon

Mynd: EPA

Atletico Madrid 2 - 0 Malaga
1-0 Lee Kang-In ('70 )
2-0 Alex Baena ('85 )
Atlético Madrid tók á móti nýliðum Málaga í eina leik kvöldsins í efstu deild spænska boltans og var staðan markalaus eftir afar tíðindalítinn fyrri hálfleik.

Diego Simeone gerði eina skiptingu í leikhlé og þrefalda skiptingu skömmu síðar sem átti heldur betur eftir að skila sér. Hann setti Lee Kang-in, sem var keyptur fyrir 50 milljónir evra í sumar, inn á völlinn og skoraði kóreski sóknartengiliðurinn frábært mark.

Lee fékk boltann úti á hægri kantinum og tók frábæran sprett inn völlinn. Hann fór framhjá þremur varnarmönnum áður en hann kláraði með laglegu skoti í fjærhornið, óverjandi fyrir Alfonso Herrero markvörð.

Atlético var sterkara liðið í seinni hálfleik og innsiglaði Álex Baena, sem kom inn af bekknum á sama tíma og Lee, sigurinn með glæsimarki beint úr aukaspyrnu á 85. mínútu. Lokatölur 2-0.


Atletico Madrid [2]-0 Malaga - Alex Baena free-kick 84'
by
u/xggq in
soccer
Spánn: Glæsimörk er Atlético sigraði nýliðana
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.