Fotbolti.net
19.08.26 - 12:00
Elvar Geir Magnússon

Jói Berg um framhaldið: Stutt í að ég þurfi að taka ákvörðun

Jóhann Berg Guðmundsson veðrur 36 ára í október.

Jóhann Berg Guðmundsson veðrur 36 ára í október.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Jóhann Berg Guðmundsson hefur ekki tekið ákvörðun um hvort hann haldi fótboltaferlinum áfram eða leggi skóna á hilluna. Jóhann, sem er 35 ára, rifti samningi sínum við Al Dhafra í Sameinuðu arabísku furstadæmunum snemma á árinu.

„Eins og er held ég öllu opnu en auðvitað fer ákvörðun að koma um hvort ég haldi áfram að spila eða hvort þetta sé komið gott. Við fjölskyldan ætlum að gefa okkur nokkrar vikur," segir Jóhann í útvarpsviðtali við Bylgjuna.
Jói Berg hætti við að semja við Breiðablik
TENGT EFNI

Jói Berg hætti við að semja við Breiðablik

„Á þessum tímapunkti þarf þetta að vera nógu spennandi til að maður vilji þetta. Maður getur ekki verið 80 prósent í fótbolta. Ég þarf að vilja gera þetta almennilega. Eins og er hefur það ekki komið upp en við sjáum til hvað gerist.“

Jóhann býr um þessar mundir á Spáni ásamt eiginkonu sinni og þremur börnum.

„Við ætlum að búa á Spáni í einhvern tíma alla vega, þar sem krakkarnir verða í skóla,“ segir Jóhann og neitar því ekki að það væri gaman ef hann gæti spilað fótbolta á Spáni.

Jói Berg á 102 landsleiki fyrir Ísland og var í samningaviðræðum við uppeldisfélag sitt Breiðablik fyrr á árinu en ekkert varð úr því að hann kæmi heim.

Heimild: Bylgjan

Jói Berg um framhaldið: Stutt í að ég þurfi að taka ákvörðun
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.