19.08.26 - 22:00
Ívan Guðjón Baldursson
Garlick: Þurfum leikmenn sem geta gert herslumuninn

Mynd: Arsenal

Mynd: Arsenal

Mynd: EPA

Mynd: Arsenal
Richard Garlick, framkvæmdastjóri Arsenal, segir að félagið sé einbeitt að því að kaupa leikmenn sem geta skipt sköpum.
Arsenal er orðið eitt af bestu félagsliðum heims undir stjórn Mikel Arteta og er stjórnin sífellt að reyna að bæta leikmannahópinn. Englandsmeistararnir eru búnir að kaupa Bruno Guimaraes og Christos Tzolis í sumar og þurfa núna að selja einhverja menn til að standa ekki uppi með alltof breiðan hóp.
Miðvörðurinn Ezri Konsa er einnig á leið til félagsins úr röðum Aston Villa í ljósi meiðslavandræða í varnarlínunni.
Arsenal reyndi við Vinícius Júnior, stórstjörnu Real Madrid, og Julián Alvarez hjá Atlético í sumar en þær tilraunir báru ekki árangur.
„Það er erfitt að finna leikmenn sem geta bætt hópinn okkar. Í fortíðinni leituðum við að ákveðnum prófílum sem gátu hjálpað okkur við að komast á næsta gæðastig en núna erum við komnir á hæsta gæðastigið. Það er rosalega erfitt að bæta svona sterkan hóp en við erum að gera okkar besta á hverjum degi," segir Garlick.
„Núna snýst þetta um að finna leikmenn sem geta bætt byrjunarliðið og hópinn, leikmenn sem geta gert herslumuninn í mikilvægustu leikjunum. Framtíðin hjá Arsenal er björt og við erum í viðræðum við Mikel Arteta um nýjan samning."
Arteta á aðeins eitt ár eftir af samningi sínum við félagið en það er sterklega búist við að hann vilji halda áfram með verkefnið.
„Við erum mjög ánægðir með hvernig viðræðurnar hafa þróast og teljum bara vera tímaspursmál hvenær Mikel skrifar undir. Við erum búnir að vera í viðræðum við hann síðustu mánuði og það er augljóst að hann vill vera áfram hjá Arsenal."