Fotbolti.net
14.08.26 - 18:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Jeff Bezos kaupir hlut í Liverpool

Jeff Bezos kaupir hlut í Liverpool
Canon

Mynd: EPA

Fenway Sports Group, eigendur Liverpool, hafa samþykkt að selja um þriðjung í félaginu til fjárfestahópsins 1892 Holdings.
Fjárfestahópurinn er undir forystu Amit Bhatia, fyrrverandi meðeiganda Queens Park Rangers. Jeff Bezos, stofnandi Amazon, er hluti af hópnum ásamt Eduardo Saverin, meðstofnanda Facebook.

Bhatia verður varaformaður og mun sitjá í stjórn félagsins. Liverpool er metið á um 6 milljarða punda eftir viðskiptin.

FSG segir að samningurinn „styðji langtímavaxtarmarkmið Liverpool með því að sameina sérfræðinga úr öllum heimshornum, bæði hvað varðar viðskipti, tækni og fjárfestingar."

„Samstarfsaðilarnir munu vinna með FSG og stjórnendateymi félagsins að því að meta tækifæri sem efla markmið félagsins bæði innan og utan vallar."

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.