Jadon Sancho, ungstirni Borussia Dortmund, er ekki í leikmannahóp liðsins sem mætir Borussia Mönchengladbach í þýsku toppbaráttunni í dag.
Lucien Favre, þjálfari Dortmund, ákvað að velja ekki Sancho til að refsa honum fyrir að mæta of seint til félagsins eftir landsleikjahlé.
Sancho kom við sögu í báðum keppnisleikjum Englands í landsleikjahlénu þrátt fyrir að vera aðeins 19 ára gamall. Hann er mikilvægur hlekkur í liði Dortmund og er búinn að skora 3 og leggja upp 6 í 7 deildarleikjum á tímabilinu.
Dortmund er sem stendur með tólf stig eftir sjö umferðir, eftir að hafa gert þrjú jafntefli í röð.
Athugasemdir