Fotbolti.net
04.07.26 - 17:15
Brynjar Ingi Erluson

Ísak skoraði fyrir Lyngby - Sverrir spilaði í sigri á Ajax

Ísak Snær skoraði í 6-3 sigri Lyngby en hér fagna þeir marki hans

Ísak Snær skoraði í 6-3 sigri Lyngby en hér fagna þeir marki hans

Canon

Mynd: Lyngby

Íslensku atvinnumennirnir okkar voru í eldlínunni á undirbúningstímabilinu í dag.
Ísak Snær Þorvaldsson var á skotskónum með Lyngby sem vann 6-3 sigur á B93. Daníel Freyr Kristjánsson, William Steindórsson og Jakob Gunnar Sigurðsson voru einnig með Lyngby í leiknum.

Davíð Kristján Ólafsson spilaði með pólska liðinu Polonia Warszawa sem tapaði fyrir Wisla Plock, 3-0. Davíð gekk í raðir félagsins frá AEL Larissa á dögunum.

Elías Rafn Ólafsson stóð í marki Midtjylland sem vann 4-2 sigur á Silkeborg.

Stefán Ingi Sigurðarson byrjaði hjá Go Ahead Eagles sem vann 4-1 sigur á Oss. Hann fór af velli í hálfleik og spilaði Alfons Sampsted síðari hálfleikinn.

Kristian Nökkvi Hlynsson lék fyrri hálfleikinn í 1-0 sigri Twente á Aberdeen.

Kolbeinn Birgir Finnsson var í liði Vålerenga í 3-1 sigri á Fredrikstad og kom Hilmir Rafn Mikaelsson inn af bekknum hjá Sigma Olomouc sem vann Kromeriz, 5-1.

Breki Baldursson og félagar í Esbjerg unnu 2-0 sigur á Aarhus Fremad og þá byrjaði Sverrir Ingi Ingason í hjarta varnarinnar hjá Panathinaikos sem vann 3-1 sigur á Ajax.

Panathinaikos undirbýr sig fyrir forkeppni Sambandsdeildarinnar en liðið mætir Paks frá Ungverjalandi 23. og 30. júlí.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.