20.03.16 - 19:38
Jóhann Ingi Hafþórsson
Heimir Guðjónsson: Guðmann braut tvisvar af sér í leiknum
Auglýsing

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
<i>„Mér fannst þetta fínt að mörgu leiti, við létum boltann ganga vel í fyrri hálfleik,\" sagði Heimir Guðjónsson eftir góðan 2-0 sigur á Þrótti í Lengjubikarnum í dag.
FH skoraði bæði mörk leiksins í fyrri hálfleiknum. Emil Pálsson kom þeim yfir út víti áður en Bergsveinn Ólafsson skoraði seinna markið með skalla eftir hornspyrnu.
Heimir segir sigurinn hafa verið þolinmæðisvinnu.

„Þeir lágu til baka og beittu skyndisóknum, þannig þetta var ákveðin þolinmæði.\"
Guðmann Þórisson fékk rautt spjald í leiknum. Heimir segir það hafa tekið smá tíma að venjast því en eftir það gerðu FH-ingar vel.
„Það tók okkur sjö, átta mínútur en Gunnar þurfti bara að verja einu sinni og hann gerði það mjög vel.\"
Hann var ekki viss með þann dóm.
„Mér fannst Guðmann vera á undan. Þetta var mjög harður dómur, Guðmann braut af sér tvisvar í leiknum.\"
Viðtalið við Heimi má sjá í heild sinni hér að ofan.