Fotbolti.net
20.03.21 - 16:55
Þorgeir Leó Gunnarsson

Rúnar Páll: Fínt að fá mark fyrir hálfleik

Auglýsing
Rúnar Páll þjálfari Stjörnunnar

Rúnar Páll þjálfari Stjörnunnar

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Stjarnan vann 4-2 sigur á Fylki í 8-liða úrslitum Lengjubikars karla í dag. Rúnar Páll Sigmundsson, þjálfari liðsins, var sáttur með sigur sinna manna og ánægður með spilamennskuna.

„Heilt yfir mjög ánægður með leikinn. Fín frammistaða í 90 mínútur þrátt fyrir að hafa fengið þessi tvö mörk á okkur í fyrri hálfleik. Það var bara klúður af okkar hálfu," sagði Rúnar eftir leik.
Þorvaldur Örlygsson kom inn í þjálfarahóp Stjörnunnar fyrir tímabilið og er Rúnar ánægður með samstarfið „Samstarfið hingað til hefur verið frábært og reikna ég með að það verði frábært út árið," sagði Rúnar léttur.

Nánar er rætt við Rúnar Pál í viðtalinu hér fyrir ofan en þar er hann meðal annars spurður út í veturinn, leikmannahópinn og markmiðin fyrir næsta sumar.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.