Fotbolti.net
20.03.21 - 19:04
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Tryggvi rekinn frá Kormáki/Hvöt - Mætti undir áhrifum áfengis

Tryggvi rekinn frá Kormáki/Hvöt - Mætti undir áhrifum áfengis
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Tryggvi Guðmundsson hefur verið vikið frá störfum sem þjálfari Kormáks/Hvatar.

Þetta herma áreiðanlegar heimildir Fótbolta.net.

Tryggvi var ekki skráður á skýrslu þegar Kormákur/Hvöt tapaði 7-4 gegn Úlfunum í dag.
Samkvæmt heimildum Fótbolta.net mætti Tryggvi undir áhrifum áfengis á æfingu liðsins á dögunum sem og í leikinn gegn Úlfunum í dag.

Tryggvi var kynntur sem þjálfari liðsins þann 24. febrúar og var því ekki þjálfari liðsins nema í tæpan mánuð.

Kormákur/Hvöt leikur í C-deild Lengjubikarsins í vetur og í 4. deild karla í sumar.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.