Stjarnan 1 - 6 Breiðablik
0-1 Hrafnhildur Ása Halldórsdóttir ('17)
1-1 Andrea Mist Pálsdóttir ('21)
1-2 Hrafnhildur Ása Halldórsdóttir ('22)
1-3 Hrafnhildur Ása Halldórsdóttir ('30)
1-4 Líf Joostdóttir van Bemmel ('72)
1-5 Hrafnhildur Ása Halldórsdóttir ('87)
1-6 Lilja Þórdís Guðjónsdóttir ('90)
0-1 Hrafnhildur Ása Halldórsdóttir ('17)
1-1 Andrea Mist Pálsdóttir ('21)
1-2 Hrafnhildur Ása Halldórsdóttir ('22)
1-3 Hrafnhildur Ása Halldórsdóttir ('30)
1-4 Líf Joostdóttir van Bemmel ('72)
1-5 Hrafnhildur Ása Halldórsdóttir ('87)
1-6 Lilja Þórdís Guðjónsdóttir ('90)
Stjarnan tók á móti Breiðabliki í stórleik dagsins í íslenska boltanum og úr varð mikil markaveisla. Liðin áttust við í undanúrslitum Lengjubikarsins.
Hrafnhildur Ása Halldórsdóttir átti stórleik fyrir Blika og reyndist langbesti leikmaður vallarins. Hún skoraði fyrsta markið á 17. mínútu en Andrea Mist Pálsdóttir jafnaði skömmu síðar.
Hrafnhildur Ása var bara rétt að byrja því hún skoraði strax aftur eftir jöfnunarmarkið og fullkomnaði svo þrennu á 30. mínútu, svo staðan var 1-3 í leikhlé.
Í síðari hálfleiknum innsiglaði Líf Joostdóttir van Bemmel sigur Blika áður en Hrafnhildur skoraði sitt fjórða mark. Lilja Þórdís Guðjónsdóttir átti enn eftir að bæta við marki svo lokatölur urðu 1-6.
Breiðablik mætir annað hvort Þrótti eða Víkingi í úrslitaleik Lengjubikarsins. Þróttur og Víkingur eigast við í spennandi Reykjavíkurslag á mánudag.
Stjarnan Bridgette Nicole Skiba (m), Jakobína Hjörvarsdóttir, Úlfa Dís Kreye Úlfarsdóttir, Ingibjörg Lúcía Ragnarsdóttir, Birna Jóhannsdóttir, Hulda Hrund Arnarsdóttir, Hrefna Jónsdóttir, Þóra María Hjaltadóttir, Andrea Mist Pálsdóttir, Murielle Tiernan, Kara Sigríður Sævarsdóttir,
Varamenn Viktoría Skarphéðinsdóttir, Nanna Sif Guðmundsdóttir, Lára Kristín Kristinsdóttir, Eydís Lilja Th. Guðmundsdóttir, Agnes Klara Bernharðsdóttir, Jana Sól Valdimarsdóttir
Breiðablik Herdís Halla Guðbjartsdóttir (m), Elísa Viðarsdóttir, Elín Helena Karlsdóttir, Barbára Sól Gísladóttir, Agla María Albertsdóttir, Katelyn Duong, Hrafnhildur Ása Halldórsdóttir, Karitas Tómasdóttir, Kristín Dís Árnadóttir, Líf Joostdóttir van Bemmel, Edith Kristín Kristjánsdóttir,
Varamenn Mikaela Nótt Pétursdóttir, Bryndís Anna Höskuldsdóttir, Guðrún Þórarinsdóttir, Emilía Kaitlyn Marshall, Helga Rut Einarsdóttir, Sunna Rún Sigurðardóttir, Lilja Þórdís Guðjónsdóttir
Athugasemdir
