Við tökum smá forskot á slúðurpakka morgundagsins því einn af stærstu slúðurmolum ensku blaðanna er sá að Jose Mourinho sé líklegastur til að taka við sem stjóri Celtic í Skotlandi.
Sun greinir frá þessu. Mourinho var rekinn frá Tottenham á mánudag eftir um eitt og hálft ár í starfi.
Celtic hefur verið í leit að stjóra frá því Neil Lennon var látinn fara fyrr á þessu ári.
Celtic vann ekki titil á þessari leiktíð og er það í fyrsta skiptið frá árinu 2010 sem það gerist.
Athugasemdir