Fotbolti.net
20.04.22 - 21:20
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Arnar Grétars: Hefði viljað setja annað mark

Auglýsing
Arnar Grétars: Hefði viljað setja annað mark
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

„Tilfinningin er góð, það er alltaf gott að vinna," sagði Arnar Grétarsson þjálfari KA eftir 1-0 sigur liðsins gegn Leikni á Dalvík í kvöld.

„Fram að eina markinu í leiknum vorum við ráðandi á vellinum, það var einu sinni til þrisvar sem við vorum hættulegir sjálfum okkur í fyrri hálfleik. Mér fannst við ráða ferðinni en eftir markið falla menn ósjálfrátt til baka, ég hefði viljað setja annað markið úr hraðri sókn en það kom ekki, að halda hreinu og taka sigur í fyrsta leik er frábært," sagði Arnar.

Arnar var ánægður með varnarleikinn en menn voru stundum of værukærir á boltann í öftustu línu.

„Leiknir skapaði sér varla færi í leiknum sem er jákvætt því Leiknir er með fínasta lið og getur haldið bolta. Mótið kemur aðeins of snemma fyrir okkur, við þurfum aðeins fleiri leiki til að komast í aðeins betri spilaæfingu saman og því er jákvætt að sækja þrjú stig."

Viðtalið í heild sinni má sjá hér að ofan.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.