Fotbolti.net
20.04.25 - 16:16
Brynjar Ingi Erluson

Spánn: Fyrirliði Sociedad skoraði bæði mörkin - Orri ekki með vegna meiðsla

Mikel Oyarzabal skoraði tvö í jafntefli

Mikel Oyarzabal skoraði tvö í jafntefli

Canon

Mynd: EPA

Landsliðsfyrirliðinn Orri Steinn Óskarsson var ekki með Real Sociedad í 2-2 jafntefli liðsins gegn Villarreal í dag vegna meiðsla, en áætlað er að hann verði klár fyrir næsta leik.
Orri Steinn hefur verið að glíma við álagsmeiðsli í aðfærivöðva og hefur ekkert getað æft síðustu daga.

Sociedad spilaði því án hans í dag og var það Mikel Oyarzabal, fyrirliði Sociedad, sem sá um að skora mörkin fyrir liðið.

Yeremi Pino kom Villarreal yfir á 7. mínútu en Oyarzabal jafnaði úr vítaspyrnu tólf mínútum síðar.

Spánverjinn bætti við öðru marki sínu snemma í þeim síðari áður en markamaskínan Ayoze Perez jafnaði metin þegar hálftími var til leiksloka.

Sociedad er í 11. sæti með 41 stig á meðan Villarreal er í 5. sæti með 54 stig.

Króatinn Ante Budimir skoraði þá tvennu fyrir Osasuna sem vann 3-2 útisigur á Real Valladolid.

Osasuna er í 10. sæti með 41 stig en Valladolid í neðsta sæti með 16 stig.

Valladolid 2 - 3 Osasuna
0-1 Ante Budimir ('9 )
0-2 Ruben Garcia ('34 )
1-2 Raul Moro ('49 )
1-3 Ante Budimir ('60 , víti)
2-3 Mamadou Sylla ('66 , víti)

Villarreal 2 - 2 Real Sociedad
1-0 Yeremi Pino ('7 )
1-1 Mikel Oyarzabal ('19 , víti)
1-2 Mikel Oyarzabal ('49 )
2-2 Ayoze Perez ('60 )

La Liga - karlar

#LiðLmunStig
1Barcelona11+3430
2Atletico Madrid11+1428
3Real Madrid11+1827
4Betis11+323
5Real Sociedad11019
6Sevilla11-217
7Athletic10+415
8Villarreal11012
9Celta11012
10Alaves11-212
11Vallecano10-512
12Getafe11-812
13Deportivo10011
14Espanyol11-111
15Osasuna10-1011
16Racing Santander11-1411
17Elche11-410
18Levante11-510
19Valencia11-99
20Malaga11-135
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.