20.04.26 - 10:52
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
ÍA sækir um að fá að spila í höllinni gegn KA

Mynd: Fótbolti.net - Elvar Geir Magnússon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Elvar Geir Magnússon
ÍA tekur á móti KA í 3. umferð Bestu deildarinnar á miðvikudag.
Áætlað var að leikurinn færi fram á ELKEM vellinum, heimavelli ÍA, en Skagamenn hafa sótt um undanþágu til KSÍ um að fá að spila í Akraneshöllinni því grasvöllurinn er ekki alveg tilbúinn eftir veturinn.

Þrjú lið eru með grasvöll sem heimavöll í Bestu deildinni. Keflavík ætlar að taka á móti Breiðabliki á HS Orku vellinum á miðvikudag en FH hefur víxlað á heimaleikjum við Val og verður sú viðureign spiluð á N1 vellinum á fimmtudag.
Leikur ÍA og Aftureldingar í lokaumferð Bestu deildarinnar í fyrra var færður inn í Akraneshöllina og samkvæmt upplýsingum Fótbolta.net var rétthafinn, SÝN Sport, ekki ánægður með að leikurinn hafi verið spilaður þar.
Það ætti að koma svar frá KSÍ seinna í dag hvort ÍA fái undanþágu til að spila í höllinni á miðvikudag.
3. umferð Bestu deildarinnar
miðvikudagur 22. apríl
17:30 Keflavík-Breiðablik (HS Orku völlurinn)
18:00 ÍA-KA (ELKEM völlurinn)
fimmtudagur 23. apríl
13:00 ÍBV-KR (Hásteinsvöllur)
17:00 Þór-Fram (Þórsvöllur)
19:15 Valur-FH (N1-völlurinn Hlíðarenda)
19:15 Víkingur R.-Stjarnan (Víkingsvöllur)

Útvarpsþátturinn - Kallaðir þú mig fokking tussu?
Stöðutafla
| # | Lið | L | mun | Stig |
|---|---|---|---|---|
| 1 | Víkingur R. | 15 | +38 | 40 |
| 2 | KR | 16 | +22 | 35 |
| 3 | Fram | 15 | +13 | 33 |
| 4 | Breiðablik | 15 | +8 | 26 |
| 5 | Keflavík | 15 | -4 | 19 |
| 6 | Valur | 16 | -6 | 19 |
| 7 | ÍBV | 15 | -7 | 16 |
| 8 | Stjarnan | 15 | -8 | 15 |
| 9 | ÍA | 15 | -12 | 15 |
| 10 | KA | 15 | -8 | 14 |
| 11 | FH | 15 | -11 | 12 |
| 12 | Þór | 15 | -25 | 11 |