Arsenal og Chelsea hafa áhuga á Bergvall - Emery á blaði Man Utd
   mán 20. apríl 2026 16:21
Kári Snorrason
Íslenskur slúðurpakki - Níu dagar í gluggalok
Snýr Hólmbert Aron heim?
Snýr Hólmbert Aron heim?
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Árni Vilhjálmsson hefur verið orðaður við heimkomu.
Árni Vilhjálmsson hefur verið orðaður við heimkomu.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Snýr Oliver aftur á Skagann?
Snýr Oliver aftur á Skagann?
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Hinrik Harðarson hefur ekki verið í stóru hlutverki hjá Odd.
Hinrik Harðarson hefur ekki verið í stóru hlutverki hjá Odd.
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
Besta deildin er hafin og níu dagar eru eftir af vetrarglugganum sem lokar 29. apríl. Sumargluggin opnar þann 16. júlí. Í Lengjudeildinni er fyrirkomulagið eins, nema opið er fyrir innlend félagskipti viku lengur, til 6. maí.

Að þessu tilefni er farið yfir þau helstu nöfn sem talin eru líkleg til að færa sig um set, eða snúa aftur heim áður en glugginn lokar.

Slúðurpakkinn er einungis til gamans gerður, ef menn hafa ábendingar varðandi pakkann eða um slúður hafið þá samband á [email protected]

Hólmbert Aron Friðjónsson
Það er ekkert launungamál að Breiðablik er í framherjaleit. Það yrði mikill fengur ef þeir ná að klófesta Hólmbert en hann var orðaður við þá í Þungavigtinni fyrir helgi. Hólmbert er leikmaður Gwangju FC í Suður-Kóreu en hann spilaði síðast á Íslandi 2017 með Stjörnunni.

Hinrik Harðarson
Hinrik hefur lítið komið við sögu hjá Odd í norsku B-deildinni upp á síðkastið en þangað var hann sóttur fyrir um ári síðan. Hann skoraði sjö mörk og lagði upp fimm í 26 leikjum með ÍA í Bestu deildinni sumarið 2024.

Árni Vilhjálmsson
Annar framherji sem Blikar hafa verið orðaðir við. Árni þekkir vel til í Kópavogi, en hann leikur núna í neðri deildunum í Sádi-Arabíu. Árni hefur verið orðaður við heimkomu í vetur en hann er samningsbundinn Sádi-arabíska liðinu út maímánuð.

Ari Leifsson
Ari var í kuldanum hjá Kolding nánast allt tímabil en er kominn aftur inn í myndina eftir að nýr þjálfari tók við liðinu. Hann er samningsbundinn Kolding þar til í sumar en Valsmenn hafa ekki farið leynt með það að þeir hafi áhuga á Ara. KA og Breiðablik höfðu jafnframt áhuga á Ara og buðu honum samning.

Hlynur Freyr Karlsson
Hlynur hefur ekkert komið við sögu með Brommapojkarna nú í upphafi tímabils í Svíþjóð. Hann spilaði 13 leiki í Allsvenskan á síðustu leiktíð. Spilaði síðast á Íslandi árið 2023, þá með Val. Nokkur íslensk félög áhuga á þessum varnarmanni.

Aron Snær Ingason
Valur hefur borið víurnar í hann en Þróttarar vilja ekki missa þennan lykilmann. Aron verður samningslaus í lok árs, en hann skoraði sjö mörk í 23 leikjum á síðasta tímabili í Lengjudeildinni.

Oliver Stefánsson
Oliver er leikmaður GKS Tychy í pólsku B-deildinni. Hann gekk til liðs við pólska félagið fyrir tæpu ári síðan frá Skagamönnum en er nú orðaður við heimkomu.

Þorvaldur Smári Jónsson
Valur hefur lagt fram nokkur tilboð í þennan unga og efnilega HK-ing en þeim hefur verið neitað. Hermann Hreiðarsson þekkir hann vel frá tíma sínum í HK og vill eflaust sækja þennan sautján ára miðjumann.

Dagur Örn Fjeldsted
Dagur hefur spilað í háskólaboltanum í Bandaríkjunum fyrri hluta árs en er nú mættur aftur heim. Hann er samningsbundinn Breiðabliki út þetta tímabil en Vestri og ÍBV hafa reynt við þennan tvítuga kantmann.

Andi Hoti
Hefur lítið komið við sögu hjá Val eftir að hann var keyptur þangað frá Leikni fyrir rúmu ári síðan. Þróttur hefur áhuga á að sækja hann í sínar raðir.


Slapp
banner
banner