Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   mið 20. maí 2020 16:37
Elvar Geir Magnússon
Bilbao goðsögn leggur skóna á hilluna
Aritz Aduriz.
Aritz Aduriz.
Mynd: Getty Images
Aritz Aduriz, leikmaður Athletic Bilbao, hefur tilkynnt að hann hafi lagt skóna á hilluna. Hann er 39 ára gamall.

Aduriz var sóknarmaður, lék alls 405 leiki fyrir félagið og skoraði 172 mörk.

Hann gekk þrívegis í raðir Bilbao en lék einnig fyrir Mallorca, Valencia og fleiri lið. Þá lék hann þrettán landsleiki fyrir Spán og spilaði á EM 2016. Einnig lék hann þrettán landsleiki fyrir Baskaland.

Aduriz þarf að gangast undir aðgerð á mjöðm og ákvað í kjölfarið að segja þetta gott í boltanum


Athugasemdir
banner
banner
banner