Man City ræðir um möguleg kaup á Ait-Nouri - Adarabioyo eftirsóttur - Newcastle vill Sesko
   mið 20. maí 2020 12:30
Elvar Geir Magnússon
Mourinho segir Beckham að hann sé heppinn
Mourinho og Beckham.
Mourinho og Beckham.
Mynd: AIA
Styrktaraðili Tottenham, AIA, bauð sjálfum David Beckham í skoðunarferð um leikvang Tottenham. Beckham ólst upp í hverfi félagsins í Norður-London.

Jose Mourinho, stjóri Tottenham, tók á móti Beckham og rölti með honum um völlinn.

Þeir fóru meðal annars og skoðuðu líkamsræktarsal sem er undir stúku vallarins og viðurkenndi Beckham að það væri betri aðstaða en nokkur sem hann hafi séð á sínum leikmannaferli.

Þá fékk Beckham hrós fyrir líkamlegt ástand sitt frá Mourinho.

„Ég verð að segja það að þú ert heppinn. Þú ert einn af fáum mönnum sem ég hef séð eftir ferilinn og þú lítur enn út eins og leikmaður," segir Mourinho.

„Flestir gaurarnir eru með vandamál í bakinu, vandamál í hnjánum eða vandamál í ökklunum."

„Það verður öðruvísi með leikmenn í dag."
Athugasemdir
banner