Fundað um Pochettino - Man City tryggir sér undrabarn - Arsenal ætlar að styrkja hópinn
   fim 20. maí 2021 17:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Jasmín að koma til baka eftir barnsburð
Jasmín Erla
Jasmín Erla
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Kristján Guðmundsson var í gær spurður út í stöðuna á þeim Anítu Ýr Þorvaldsdóttur og Jasmín Erlu Ingadóttir sem hafa ekki verið með Stjörnunni í upphafi móts. Kristján var til viiðtals eftir sigur Stjörnunnar gegn Þór/KA í gær.

Jasmín skoraði eitt mark í sextán leikjum í fyrra og Aníta skoraði fimm mörk í fimmtán leikjum.

„Aníta var í athugun í dag, ég veit ekki alveg hvað kom út úr því, við vitum eitthvað um hennar stöðu í þessari viku," sagði Kristján.

„Jasmín er að koma til baka eftir barnsburð, aðeins farin að æfa. Held það séu um tvær vikur í að hún fari í meiri fótboltaæfingar," sagði Kristján.

Hildigunnur Ýr Benediktsdóttir skoraði svo gott sem flautu-sigurmark þegar hún skoraði eina mark leiksins í gær á 93. mínútu leiksins.


Aníta Ýr
Kristján eftir sætan sigur: Miklar tilfinningar sem brjótast út
Athugasemdir
banner
banner
banner