Guardiola í árs frí og tekur svo við landsliði - Alonso vill sóknarmann Brentford - Bowen eftirsóttur
   mið 20. maí 2026 22:12
Ívan Guðjón Baldursson
Hinrik skoraði í tapi - Brann tapaði Íslendingaslag
Mynd: Odd
Mynd: Álasund
Mynd: GAIS
Hinrik Harðarson kom inn af bekknum og skoraði fjórum mínútum síðar í tapi Odd á útivelli gegn Kongsvinger í næstefstu deild í Noregi.

Hinriki var skipt inn á 82. mínútu og tókst honum að minnka muninn niður í 3-2, en skömmu síðar innsigluðu heimamenn sigurinn. Lokatölur 4-2.

Hinrik er varaskeifa hjá Odd og er þetta hans fyrsta mark á deildartímabilinu. Hann skoraði 3 mörk og gaf 1 stoðsendingu í 20 leikjum í fyrra.

Í efstu deild í Noregi tapaði meiðslahrjáð lið Brann Íslendingaslag gegn Álasundi.

Kristall Máni Ingason og Jón Dagur Þorsteinsson voru í byrjunarliðinu hjá en tókst ekki að koma í veg fyrir tap. Eggert Aron Guðmundsson og Sævar Atli Magnússon eru báðir meiddir hjá Brann, sem leikur undir stjórn Freys Alexanderssonar.

Meiðslalisti liðsins er gríðarlega langur og telur hann níu nöfn samkvæmt úrslitaþjónustu FlashScore. Brann mætti til leiks með sjö varamenn af níu mögulegum.

Ólafur Guðmundsson lék allan leikinn í hjarta varnarinnar hjá Álasundi og kom Davíð Snær Jóhannsson inn af bekknum í seinni hálfleik.

Lokatölur urðu 2-1 og er þetta annar sigurinn í röð hjá Álasundi eftir erfiða byrjun á tímabilinu. Ólafur, Davíð og félagar eru með 9 stig eftir 9 umferðir.

Brann er með 13 stig og er strax dottið 11 stigum á eftir toppliði Viking.

Júlíus Mar Júlíusson lék þá allan leikinn í sigri hjá Kristiansund á útivelli gegn Lilleström. Hrannar Snær Magnússon kom inn af bekknum og spilaði síðasta stundarfjórðunginn með Júlíusi.

Kristiansund er í neðri hluta deildarinnar með 11 stig eftir 9 umferðir.

Að lokum var Róbert Frosti Þorkelsson í byrjunarliði GAIS sem lagði Hammarby að velli í efstu deild í Svíþjóð.

Róbert Frosti er tvítugur miðjumaður sem hefur tekist að festa sig í sessi í byrjunarliðinu hjá GAIS, sem er með 12 stig eftir 9 umferðir.

Þetta er frábær sigur fyrir GAIS gegn sterkum andstæðingum. Hammarby situr í öðru sæti deildarinnar með 17 stig eftir 9 umferðir, en öll liðin í kring eiga leik til góða.

Kongsvinger 4 - 2 Odd
0-1 J. Buus ('31)
1-1 F. Christensen ('56, víti)
2-1 R. Christensen ('68)
3-1 L. Langrekken ('73)
3-2 Hinrik Harðarson ('86)
4-2 P. Udnæs ('88)

Aalesund 2 - 1 Brann

Lillestrom 1 - 2 Kristiansund

GAIS 2 - 0 Hammarby

Slapp
banner
banner