Fotbolti.net
20.06.05 - 13:03
Hafliði Breiðfjörð

Kluivert til Valencia (Staðfest)

Kluivert til Valencia (Staðfest)
Canon
Hollenski framherjinn Patrick Kluivert verður leikmaður Valencia á Spáni á næstu leiktíð en þetta varð ljóst í morgun er læknar spænska félagsins sögðu að í lagi væri með hnéð á kappanum. Kluivert átti að semja við félagið fyrir viku síðan en því var frestað vegna vandamála við hné hans.
Þau mátti rekja til þess að hann hafði nýgengið undir uppskurð á hnénu og ekki var hægt að rannsaka það við læknisskoðunina. Nú hefur hinsvegar verið gefið grænt ljós á hnéð og leikmaðurinn skrifar undir þriggja ára samning við félagið.

Hann verður tilkynntur formlega á blaðamannafundi 28. júní næstkomandi ásamt miðvallarleikmanninum Edu, markverðinum Juan Luis Mora og þjálfaranum Quique Sanchez Flores.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.