Fotbolti.net
20.06.14 - 13:40
Elvar Geir Magnússon

Óli Þórðar: Skandall hvernig enska pressan hagar sér

Auglýsing
„Mér fannst Cahill alveg gjörsamlega vera úti á túni í gær.\"

„Mér fannst Cahill alveg gjörsamlega vera úti á túni í gær.\"

Canon

Mynd: Getty Images

Coca-Cola HM
Englendingar eru án stiga eftir tvo fyrstu leiki sína á HM en liðið tapaði fyrir Úrúgvæ í gær. Fótbolti.net fékk Ólaf Þórðarson, þjálfara Víkings, til að segja sitt álit á enska liðinu.
„Enska liðið átti mjög fínan leik gegn Ítalíu en var óheppið. En maður veit það í fótbolta að þegar þú ert búinn að vera óheppinn nokkrum sinnum þá er það út af einhverju. Þeir halda ekki halda einbeitingu og eru ekki fókuseraðir á þau verkefni sem þeir eiga að sinna inni á vellinum. Það fannst mér gerast í gær,\" segir Ólafur.

„Í seinna markinu hjá Úrúgvæ voru Englendingarnir ekki að spá í varnarleikinn þegar þeir áttu að vera að gera það.\"

Miðverðirnir Phil Jagielka og Gary Cahill hafa fengið sinn skerf af gagnrýni.

„Mér fannst Cahill alveg gjörsamlega vera úti á túni í gær. Annar hafsentinn fer upp í skallaeinvígi og þá á hinn að droppa og aðstoða. Þeir voru ekkert að spá í því sem var í gangi í kringum þá og það kom í bakið á þeim.\"

„Það vantar meiri gæði á miðjuna hjá Englendingum til að hægt sé að búa eitthvað til. Þeir voru bara í bölvuðu basli og áttu í raun sárafá færi í þessum leik í gær. Maður heldur alltaf með Englandi í þessu en þeir valda manni alltaf jafnmiklum vonbrigðum.\"

Enskir fjölmiðlar eru oft nefndir sem helstu andstæðingar enska landsliðsins, blöðin eru dugleg að pönkast í leikmönnum og draga upp neikvæðni.

„Það er algjör skandall hvernig enska pressan hagar sér í kringum stórmót hjá enska landsliðinu. Þeir virðast vera helstu óvinir enska landsliðsins. Þeir grafa og grafa upp alla drullu sem þeir finna til að klína á liðið og brjóta það niður. Þetta er með ólíkindum og þekkist hvergi annarstaðar í heiminum. Annarsstaðar standa fjölmiðlar með liðinu allavega þangað til það dettur út,\" segir Ólafur.

Viðtalið má sjá í heild sinni hér að ofan.
Taktu þátt í HM-umræðunni á Facebook! Smelltu hér til að fara á heimasvæði Fótbolta.net á Facebook þar sem oft skapast líflegar umræður um boltann.
Ólafur Þórðarson, þjálfari Víkings.

Ólafur Þórðarson, þjálfari Víkings.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.