Vuk Oskar Dimitrijevic hefur verið að leika býsna vel með Fram í sumar. Hann hefur skorað sex mörk í ellefu leikjum og hefur hann aldrei skorað svona mikið áður í Bestu deildinni. Mótið er bara rétt tæplega hálfnað líka.
Vuk hefur fengið traustið hjá Rúnari Kristinssyni, þjálfara Fram, og hefur heldur betur þakkað fyrir það.
Vuk hefur fengið traustið hjá Rúnari Kristinssyni, þjálfara Fram, og hefur heldur betur þakkað fyrir það.
Vuk skoraði í síðasta leik gegn sínum gömlu félögum í FH og var rætt um frammistöðu hans í Innkastinu.
„Hann fagnar ekki," sagði Sæbjörn Steinke í Innkastinu og sagði Elvar Geir Magnússon að hann hefði átt að fagna. „Ég skil hann alveg smá. Ég er ekki hrifinn af því þegar menn fagna ekki en ég held að hann hafi hugsað 'ég ég get ekki verið að nudda í þessu í þá því ég gat ekki nógu mikið hjá þeim'."
„Rúnar Kristinsson ákvað að spila honum áfram og koma honum í gang. Manni fannst oft hjá FH að þegar þeir voru byrjaðir að undirbúa skiptingar og Vuk byrjaði, þá sá maður Vuk gægjast á bekkinn. Núna er hann með sjálfstraustið og fær þetta traust," sagði Elvar Geir.
„Ég held að Rúnar hafi pottþétt bara sagt við hann að hann myndi spila fyrstu ellefu leikina sama hvað. 'Þú ert í liðinu og hafðu engar áhyggjur'. Mér finnst hann geisla af sjálfstrausti," sagði Benedikt Bóas Hinriksson í þættinum.
Athugasemdir