Fotbolti.net
20.06.25 - 13:06
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Wolves kaupir Fer Lopez á 25 milljónir evra (Staðfest)

Fer Lopez.

Fer Lopez.

Canon

Mynd: Wolves

Úlfarnir hafa gengið frá kaupum á miðjumanninum Fer Lopez frá Celta Vigo.

Hann kostar félagið 25 milljónir evra og verður þar með sjöundi dýrasti leikmaður í sögu félagsins.
Matheus Cunha til Man Utd (Staðfest)
TENGT EFNI

Matheus Cunha til Man Utd (Staðfest)

Þessi 21 árs gamli sóknarsinnaði miðjumaður er fyrsti leikmaður sem Úlfarnir sækja í sumar.

Lopez æfði á Englandi í þrjá mánuði þegar hann var yngri og vakti þá athygli. Hann spilaði sinn fyrsta leik með aðalliði Celta í fyrra og er núna mættur í ensku úrvalsdeildina. Þetta er fljótt að gerast.

Talað hefur verið um Lopez sem arftaka Matheus Cunha sem fór til Manchester United en hjá Wolves hafa menn talað niður þann samanburð; Lopez þurfi tíma til að aðlagast enskum fótbolta.

Lopez hefur verið orðaður við stærstu félög Spánar og Juventus á Ítalíu, en hann skrifaði undir fimm ára samning við Wolves.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.