Fotbolti.net
20.07.05 - 15:36
Hafliði Breiðfjörð

Peter Crouch til Liverpool (Staðfest)

Peter Crouch til Liverpool (Staðfest)
Canon
Enski landsliðsframherjinn Peter Crouch er nú orðinn leikmaður Liverpool en kaupverð á honum frá Southampton var 7 milljónir punda. Leikmaðurinn komst í gegnum læknisskoðun hjá félaginu í morgun og skrifaði svo undir fjögurra ára samning. Hann mun nú fara með liðinu í æfingaferð til Sviss.
,,Ég er hæstánægður með að ganga til liðs við félag sem er eins virt og farsælt og Liverpool," sagði Crouch.

,,Um leið og ég heyrði af áhuga þeirra á mér var erfitt annað en að hugsa um hvernig það væri að fara í frægu rauðu treyjuna og spila fyrir framan Kop."

Crouch er sjöttu kaup Rafael Benítez til Liverpool í sumar, kemur á eftir Jose Reina, Boudewijn Zenden, Momo Sissoko, Mark Gonzalez og Antonio Barragan.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.