20.07.05 - 15:54
Hafliði Breiðfjörð
Andy Cole til Manchester City (Staðfest)

Andy Cole framherji Fulham gekk í dag formlega í raðir Manchester City þar sem hann gerði tveggja ára samning. Cole sem verður 34 ára gamall í október fór í læknisskoðun fyrr í vikunni en ekki náðist að ganga frá formsatriðum fyrr en´i dag.
Stuart Pearce stjóri City hafði viljað fá leikmanninn í sínar raðir eftir að selja Jon Macken til Crystal Palace en Blackburn voru einnig á eftir Cole. Fulham leyfðu Cole að fara frítt frá félaginu þótt hann hafi átt eitt ár eftir af samningi sínum en þeir eru komnir með Heiðar Helguson í framlínuna hjá sér fyrir næstu leiktíð.
,,Andy hefur spilað 100 leiki á undanförnum þremur árum og var sjötti eða sjöundi markahæsti leikmaðurinn á síðustu leiktíð þegar Fulham áttu í vandræðm. Hann er toppleikmaður og ég vit að ungu leikmennirnir geta lært af honum," sagði Stuart Pearce í dag.