Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   lau 20. júlí 2019 17:33
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Sjáðu markið hjá hinum 17 ára Mason Greenwood
Mynd: Getty Images
Hinn 17 ára gamli Mason Greenwood skoraði sigurmark Manchester United gegn Inter í æfingaleik í Singapúr í dag.

Greenwood er hrikalega efnilegur. Hann hefur raðað inn mörkunum með unglingaliðum United og er að koma sér inn í aðalliðið. Hann spilaði fjóra leiki í öllum keppnum fyrir United á síðustu leiktíð, þar á meðal þrjá leiki í ensku úrvalsdeildinni.

Á undirbúningstímabilinu er Greenwood kominn með tvö mörk í þremur leikjum.

„Hann minnir mig svolítið á Ryan Giggs að því leytinu til að þú getur ekki sent hann út á láni. Hann er nægilega góður til þess að vera í hópnum," sagði Solskjær um Greenwood eftir sigurinn á Inter.

Sjá einnig:
Greenwood gæti byrjað í fyrsta leik hjá Man Utd

Hér að neðan má sjá markið hans í dag.



Athugasemdir
banner
banner