Fotbolti.net
30.09.26 - 19:00
Ívan Guðjón Baldursson

Evrópubikarinn: Blikar töpuðu í Póllandi

Evrópubikarinn: Blikar töpuðu í Póllandi
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Kvennaboltinn
Czarni Sosnowiec 1 - 0 Breiðablik
(7-2 samanlagt)
1-0 Patrycja Sarapata ('58)
1-0 Klaudia Milek ('82, misnotað víti)
Lestu um leikinn: Czarni 1 - 0 Breiðablik
Breiðablik er úr leik í Evrópubikarnum eftir að hafa tapað gegn pólska félaginu Czarni Sosnowiec. Blikar áttu litla sem enga möguleika fyrir viðureignina eftir að hafa tapað heimaleiknum 2-6 fyrir viku síðan.

Liðin mættust í Póllandi í dag og var staðan markalaus eftir fjörugan fyrri hálfleik. Þær pólsku voru sterkari aðilinn en Blikar komust tvisvar sinnum nálægt því að skora.

Í síðari hálfleik hélt pólska liðið áfram að herja á Blika og skoraði Patrycja Sarapata eftir hornspyrnu á 58. mínútu. Þær komust nálægt því að bæta marki við en tókst ekki og fengu dæmda vítaspyrnu á lokakaflanum, sem Taylor Kane varði í tvígang. Í fyrra skiptið taldi dómarateymið hana verið komna af línunni áður en skotinu var hleypt af stað, en í seinna skiptið var varslan góð og gild.

Klaudia Milek klúðraði báðum vítaspyrnutilraununum og fékk nokkuð magn dauðafæra í þessum leik í Póllandi, en tókst ekki að skora. Lokatölur urðu því 1-0 í Póllandi og 7-2 samanlagt.
Evrópubikarinn: Blikar töpuðu í Póllandi
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.