30.09.26 - 19:25
Ívan Guðjón Baldursson
Ceferin um Infantino: Keisarinn er nakinn

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Aleksander Ceferin, forseti UEFA, ávarpaði evrópsk fótboltafélög á árlegum viðburði sem haldinn er í Kaupmannahöfn.

TENGT EFNI
Infantino tilkynnir KSÍ að sambandið fái yfir fimm milljarða styðji það áform sín
Hann fór þar hörðum orðum um Gianni Infantino, forseta FIFA, án þess þó að nefna hann á nafn.
„Keisarinn er sannfærður um að hann sé að klæðast stórkostlegum fötum - fötum sem, honum er sagt, að bara heimskingjar og óhæfir sjái ekki. Þegnar hans spila með allt þar til lítið barn segir upphátt þar sem allir geta séð: Keisarinn er nakinn," sagði Ceferin meðal annars og vitnaði í ævintýrið Nýju fötin keisarans, eftir danska skáldið H.C. Andersen.
„Boðskapur sögunnar er að þægileg orð geta ekki breytt óþægilegum staðreyndum. Að selja hlut af framtíð fótboltans er ekki þróun bara út af því að þú segir að það sé þróun. Að mæta með fullbúinn samning til aðildarsambanda þýðir ekki lýðræðisvæðing þó þú kallir það lýðræðisvæðingu, sama hver upphæðin er. Leynd verður ekki að samráði þó þú kallir það samráð.
„Ímyndið ykkur ef einn af ykkar æðstu stjórnendum myndi semja frá sér yfirráðum á dýrmætustu eignum félagsins í laumi, án samráðs við ykkur, stjórnarmeðlimi, leikmenn eða stuðningsmenn. Svo þegar þið komist loksins að þessu, þá er samkomulagið nánast í höfn. Hvernig mynduð þið bregðast við? Hvernig myndi stjórnin bregðast við?
„Ímyndið ykkur ef þessi stjórnandi myndi búa til 'friðarverðlaun' fyrir pólitískan leiðtoga, algjörlega án samráðs við ykkur eða stjórnina. Síðar hefur símtal frá fyrrnefndum pólitískum leiðtoga bein áhrif á niðurstöðu í stærstu íþróttakeppni heims. Reglurnar segja eitt, síminn hringir og ákvörðunin breytist.
„Kæru vinir, ég held að það sé kominn tími til að segja að nú er nóg komið!
„Enginn hefur rétt til þess að selja framtíð fótboltans."