30.09.26 - 21:17
Ívan Guðjón Baldursson
Evrópubikarinn: Ída Marín skoraði - Hlín lagði upp

Mynd: Hammarby

Mynd: Malmö

Mynd: Jónína Guðbjörg Guðbjartsdóttir

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Hammarby

Síðustu leikjum kvöldsins er lokið í Evrópubikarnum þar sem Ída Marín Hermannsdóttir var í byrjunarliði Hammarby og skoraði annað mark leiksins í flottum sigri.

TENGT EFNI
Evrópubikarinn: Diljá Ýr skoraði í öruggum sigri
Ída Marín skoraði á 62. mínútu á útivelli gegn skoska stórveldinu Rangers og fékk skiptingu strax eftir markið. Lokatölur urðu 0-3 fyrir Hammarby sem tryggði sér þátttökurétt í 16-liða úrslitum með sigrinum. Sænsku risarnir unnu fyrri leikinn 2-0 á heimavelli svo samanlögð úrslit eru 5-0.
Hlín Eiríksdóttir var þá í byrjunarliði Malmö og gaf stoðsendingu í þægilegum sigri gegn austurríska félaginu Sankt Pölten.
Hlín lék allan leikinn og lagði fyrsta markið upp er Malmö tryggði sér þátttökurétt í næstu umferð með samanlögðum 5-0 sigri, alveg eins og samlandar sínir í Hammarby.
Danska stórveldið Bröndby heimsótti svo Sporting CP til Portúgals og lentu Danirnir undir í tvígang. Staðan var 2-1 þegar Hafrúni Rakel Halldórsdóttur var skipt inn af bekknum og tókst Bröndby að jafna, svo lokatölur urðu 2-2. Bröndby fer áfram í næstu umferð eftir frábæran 4-1 sigur í fyrri leiknum á heimavelli.
Hafrún Rakel spilaði síðasta hálftímann í leiknum.
Þetta þýðir að Íslendingaliðin þrjú Hammarby, Malmö og Bröndby fara öll áfram í 16-liða úrslitin. Sænskt Íslendingalið BK Häcken er ríkjandi meistari en keppir í Meistaradeildinni í vetur.
Í öðrum leikjum rúllaði Real Sociedad yfir Hearts, Wolfsburg lagði Sturm Graz að velli í Austurríki, Fenerbahce hafði betur gegn Minsk og Torreense fór létt með FC Kharkiv.
Rangers 0 - 3 Hammarby (0-5 samanlagt)
0-1 A. Walter ('14)
0-2 Ída Marín Hermannsdóttir ('62)
0-3 F. Peterson ('79)
Malmö 3 - 0 St. Pölten (5-0 samanlagt)
Sporting 2 - 2 Bröndby (3-6 samanlagt)
Real Sociedad 4 - 0 Hearts (4-0 samanlagt)
Sturm Graz 0 - 2 Wolfsburg (1-8 samanlagt)
Fenerbahce 1 - 0 Minsk (5-1 samanlagt)
Torreense 4 - 1 FC Kharkiv (6-2 samanlagt)