Fotbolti.net
30.09.26 - 15:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Verðandi leikmaður City valinn leikmaður mánaðarins

Cavan Sullivan.

Cavan Sullivan.

Canon

Mynd: EPA

Cavan Sullivan, 17 ára miðjumaður Philadelphia Union, var í dag valinn leikmaður septembermánaðar í MLS-deildinni.

Sullivan átti magnaðan mánuð og skilaði níu markframlögum í fjórum leikjum. Sullivan hefur nú skorað eða lagt upp mark í átta leikjum í röð, sem er lengsta slíka hrina hjá táningsleikmanni í sögu MLS.
Vináttulandsleikir: Bandarískir táningar skinu skært - Mora braut blað fyrir Mexíkó
TENGT EFNI

Vináttulandsleikir: Bandarískir táningar skinu skært - Mora braut blað fyrir Mexíkó

Philadelphia Union vann alla fimm leiki sína í september og var eina liðið í deildinni með fullt hús stiga í mánuðinum.

Frammistaðan skilaði Sullivan sínu fyrsta landsliðsvali fyrir Bandaríkin. Hann byrjaði síðan gegn Perú 26. september og varð þar með næstyngsti leikmaðurinn til að byrja leik fyrir bandaríska A-landsliðið.

Sullivan er aðeins 17 ára og tveggja daga gamall í dag og er yngsti leikmaðurinn í sögu MLS til að hljóta verðlaunin leikmaður mánaðarins.

Sullivan gerði samkomulag við Manchester City árið 2024 um að ganga í raðir félagsins þegar hann yrði 18 ára. Nýleg þróun í málum Manchester City hefur hins vegar vakið spurningar um hvort sú áætlun muni ganga eftir.

Enska úrvalsdeildin staðfestir niðurstöðuna
TENGT EFNI

Enska úrvalsdeildin staðfestir niðurstöðuna

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.