30.09.26 - 17:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Pogba sagður á leið í óvænt ævintýri

Paul Pogba.

Mynd: EPA

Pogba var síðast á mála hjá Mónakó.

Mynd: EPA

Paul Pogba.

Mynd: EPA
Paul Pogba gæti verið á leið í nokkuð óvænt ævintýri en franski miðjumaðurinn hefur verið boðið að ganga til liðs við tyrkneska félagið Bursaspor.
Samkvæmt tyrkneska miðlinum Fotomac hafa fulltrúar Pogba átt í jákvæðum viðræðum við Bursaspor og möguleiki er á að hann gangi til liðs við félagið.

Bursaspor leikur í næstefstu deild Tyrklands og ætlar sér upp í efstu deild. Félagið hefur verið á mikilli uppleið undanfarin ár eftir að hafa fallið alla leið niður í fjórðu deild, en hefur nú unnið sig upp um tvær deildir.
Pogba gekk til liðs við Mónakó síðasta sumar eftir langt hlé frá fótbolta út af lyfjabanni en dvölin þar varð stutt. Hann lék aðeins sex leiki og samtals 115 mínútur áður en samningi hans við félagið var rift í ágúst.
Kelechi Iheanacho, fyrrverandi framherji Manchester City, leikur með Bursaspor og heimavöllur þess tekur um 43 þúsund áhorfendur.
Pogba varð heimsmeistari með Frakklandi árið 2018 og átti á sínum tíma farsælan feril með Juventus og Manchester United. Ferill hans hefur hins vegar verið erfiður undanfarin ár, meðal annars vegna lyfjabanns sem hélt honum frá keppni í langan tíma.