Fotbolti.net
30.09.26 - 14:40
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Nýja miðvarðaparið sem Arnar þarf að hafa augun á

Davíð Helgi fagnar marki með U21 landsliðinu í gær.

Davíð Helgi fagnar marki með U21 landsliðinu í gær.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Eimskip
Það er miðvarðakrísa í íslenska A-landsliðinu en í U21 landsliðinu er að koma upp spennandi miðvarðapar, tveir leikmenn sem hafa tekið stór skref á skömmum tíma.

Davíð Helgi Aronsson og Júlíus Mar Júlíusson spiluðu saman með U21-landsliðinu bæði gegn Frakklandi og Sviss og gætu verið tveir af þeim leikmönnum sem Arnar Gunnlaugsson þarf að fylgjast sérstaklega með á næstu vikum og mánuðum.

Þessi frétt er hluti af pistli sem birtist 29. september á áskriftarvef Fótbolti.net. Pistilinn í heild sinni er hægt að nálgast hér fyrir neðan, boðið er upp á ókeypis viku áskrift gegn skráningu.

Þú getur skráð þig með því að smella hérna.
Davíð Helgi: Mér var strax hent í djúpu laugina
TENGT EFNI

Davíð Helgi: Mér var strax hent í djúpu laugina

Davíð Helgi er 19 ára gamall og uppalinn hjá Víkingi. Hann tók stór skref á síðustu tveimur árum þegar hann fór á lán, fyrst til Njarðvíkur og síðan Keflavíkur. Þar fékk hann mikilvæga reynslu í Lengjudeildinni og Bestu deildinni og spilaði bæði sem miðvörður og djúpur miðjumaður.

Hann fór svo í sumar til Lyngby í Danmörku á láni með kaupmöguleika. Þar var honum strax hent í djúpu laugina og byrjaði sinn fyrsta leik á Parken gegn FC Kaupmannahöfn.

Davíð er örvfættur, sterkur í varnaraðgerðum og góður í loftinu. Hann hefur því ýmis verkfæri sem geta gert hann að áhugaverðum miðverði til framtíðar. Hann þarf þó að verða stöðugri í sínum leik. Hann getur enn slökkt á sér í einstaka augnablikum og slíkt verður sífellt dýrara eftir því sem stigið hækkar.

Júlíus er kominn aðeins lengra á sínum ferli enda 22 ára. Hann er uppalinn hjá Fjölni og var farinn að spila stórt hlutverk í næstefstu deild árið 2022, þá aðeins 18 ára gamall. Hann tók síðan sífellt stærra hlutverk áður en KR keypti hann fyrir síðasta tímabil. Tímabilið í Vesturbænum var upp og ofan. Júlíus byrjaði vel en dalaði eftir því sem leið á tímabilið. Það kom þó ekki í veg fyrir að Kristiansund í Noregi sæi nægilega mikið í honum til að sækja hann til Íslands.

Þar hefur Júlíus svo sannarlega tekið næsta skref. Hann er í algjöru lykilhlutverki hjá Kristiansund og hefur spilað gríðarlega mikið. Hann er í 26. sæti í allri norsku úrvalsdeildinni yfir mínútur spilaðar og í 11. sæti yfir inngrip (e. interceptions). Hann er að spila reglulega og gegna mikilvægu hlutverki í liði í efstu deild.

Júlíus hefur einnig sýnt leiðtogahæfileika langt umfram það sem aldur hans gefur til kynna. Hann var um tíma kominn með fyrirliðabandið hjá KR þrátt fyrir ungan aldur og hefur þannig snemma öðlast traust innan þeirra liða sem hann hefur spilað fyrir.

Saman mynda þeir nýtt miðvarðapar U21-landsliðsins og eru klárlega leikmenn sem Arnar Gunnlaugsson þarf að hafa augun á.

Krísa í íslenskum fótbolta - Miðverðir framtíðarinnar
TENGT EFNI

Krísa í íslenskum fótbolta - Miðverðir framtíðarinnar

Júlíus Mar (hér númer 3).

Júlíus Mar (hér númer 3).

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Arnar Gunnlaugsson, landsliðsþjálfari.

Arnar Gunnlaugsson, landsliðsþjálfari.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson

Davíð Helgi fór nýverið út til Lyngby.

Davíð Helgi fór nýverið út til Lyngby.

Canon

Mynd: Lyngby

Júlíus Mar leikur með Kristiansund í Noregi.

Júlíus Mar leikur með Kristiansund í Noregi.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.