Fotbolti.net
30.09.26 - 17:54
Ívan Guðjón Baldursson

EM U21: Færeyingar úr leik eftir tap á heimavelli

EM U21: Færeyingar úr leik eftir tap á heimavelli
Canon

Mynd: Hrefna Morthens

Færeyjar 0 - 1 Lúxemborg
0-1 Leon Elshan ('76)
Frændur okkar frá Færeyjum eru úr leik í undankeppni fyrir EM U21 landsliða á næsta ári eftir tap á heimavelli gegn Lúxemborg.

Tapið er mikill skellur fyrir Færeyinga, sem hefðu með sigri getað barist við Ísland og Sviss um annað sæti undanriðilsins.

Lúxemborg var sterkara liðið í dag og skoraði Leon Elshan eina mark leiksins á 76. mínútu. Færeyingar sáu vart til sólar og voru heppnir að tapa ekki stærra.

Færeyjar eiga 12 stig, þremur minna en Ísland, fyrir lokaumferð undankeppninnar og taka þeir á móti Íslandi. Færeysku strákarnir unnu fyrri leikinn gegn Íslandi þegar þeir nýttu báðar marktilraunir sínar til að skora, en Strákarnir okkar klúðruðu góðum færum til að snúa stöðunni við.

Ísland á góða möguleika á að ná öðru sæti riðilsins. Strákarnir þurfa sigur í Færeyjum og verða á sama tíma að treysta á að Sviss hafi ekki betur gegn ógnarsterku liði Frakka í Frakklandi.

U21: Strákarnir léku listir sínar og pökkuðu Sviss saman
TENGT EFNI

U21: Strákarnir léku listir sínar og pökkuðu Sviss saman

EM U21: Færeyingar úr leik eftir tap á heimavelli
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.