30.09.26 - 18:29
Ívan Guðjón Baldursson
Evrópubikarinn: FH úr leik eftir draumabyrjun

Mynd: Fótbolti.net - J.L.

Mynd: Fótbolti.net - J.L.

Mynd: Fótbolti.net - J.L.

Mynd: Fótbolti.net - J.L.

Eintracht Frankfurt 4 - 1 FH
(5-1 samanlagt)
0-1 Nia Raisa Christopher ('12)
1-1 Larissa Mühlhaus ('47)
2-1 Laura Freigang ('56)
3-1 Hanna Bennison ('62)
4-1 Hayley Raso ('78)
(5-1 samanlagt)
0-1 Nia Raisa Christopher ('12)
1-1 Larissa Mühlhaus ('47)
2-1 Laura Freigang ('56)
3-1 Hanna Bennison ('62)
4-1 Hayley Raso ('78)

TENGT EFNI
Byrjunarlið FH í Frankfurt: Aldís aftur í markið
FH er dottið úr keppni í Evrópubikar kvenna eftir erfiða leiki við þýska félagið Eintracht Frankfurt.
Frankfurt vann fyrri viðureign liðanna í Hafnarfirði og mættu FH-stelpurnar grimmar til leiks í Þýskalandi og fengu dauðafæri strax í upphafi.
Boltinn rataði þó ekki í netið strax, en Nia Raisa sá um að skora fyrsta mark leiksins á tólftu mínútu eftir góðan undirbúning frá Ingibjörgu Magnúsdóttur á hægri kanti. Nia skallaði boltann í netið og tókst hvorugu liði að bæta marki við í fyrri hálfleik. Frankfurt hélt í boltann og sótti en tókst ekki að skapa góð færi gegn skipulögðum Hafnfirðingum.
Þær þýsku gerðu tvöfalda skiptingu í leikhlé og kom Larissa Mühlhaus inn af bekknum. Hún skoraði skömmu síðar þrátt fyrir að renna í skottilrauninni.
Laura Freigang skoraði svo eftir fyrirgjöf á 56. mínútu og bættu Hanna Bennison og Hayley Raso sitthvoru markinu við til að innsigla 4-1 sigur. Samanlagðar lokatölur 5-1 eftir tapið í Hafnarfirði.