Fotbolti.net
30.09.26 - 16:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Arbeloa ákærður eftir leikinn gegn Man Utd

Alvaro Arbeloa.

Alvaro Arbeloa.

Canon

Mynd: EPA

Enska fótboltasambandið hefur ákært Álvaro Arbeloa, stjóra Fulham, vegna ummæla hans eftir 1-1 jafntefli gegn Manchester United í september.

Arbeloa gaf í skyn eftir leikinn að dómarar leiksins myndu ekki leyfa Manchester United að tapa á Craven Cottage.
„Ég vissi eftir leikinn gegn Manchester City að þeir myndu ekki leyfa Manchester United að tapa hér,“ sagði Arbeloa í sjónvarpsviðtali eftir leikinn. Hann var einnig ósáttur við dómgæsluna og sagði að United hefði fengið „allar aukaspyrnurnar“.

Enska sambandið segir Arbeloa hafa „hegðað sér með óviðeigandi hætti með ummælum í viðtali eftir leik sem gefa í skyn hlutdrægni og/eða draga í efa heilindi dómara."

Manchester United bjargaði stigi í leiknum með marki Matheus Cunha á 89. mínútu eftir að Lisandro Martínez hafði skorað sjálfsmark snemma í síðari hálfleik. Arbeloa tók við Fulham í sumar en hefur enn ekki stýrt liðinu til sigurs í deildinni. Hann hefur frest til fimmtudags til að svara ákærunni.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.