KSÍ harmar mistökin - „Við þurfum að fara virkilega yfir þetta"


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Þorsteinn Halldórsson, landsliðsþjálfari, veitir verðlaunapeninga og fyrir aftan hann er Eysteinn, framkvæmdastjóri KSÍ. Þessi mynd er ekki frá því í gær.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Þorvaldur Örlygsson, formaður KSÍ, og Eysteinn framkvæmdastjóri.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Magnús Haukur Harðarson, þjálfari hjá HK, birti færslu á samfélagsmiðlum þar sem hann birti mynd af silfurmedalíum sem hans lið fékk. Á medalíunum stendur „3. flokkur karla".

FH Íslandsmeistari í 2. flokki en enginn mætti með bikar - Framkvæmdastjóri KSÍ biðst afsökunar
Eysteinn harmar segir að KSÍ harmi mistökin. „Það eru margar verðlaunaafhendingar og hér voru gerð þau leiðinlegu mistök að það eru teknir rangir verðlaunapeningar. Bikarinn var réttur en verðlaunapeningarnir voru rangir."
„Við erum miður okkar yfir því. Við ætlum að skoða þetta frá A til Ö og athuga hvort félögin geti aðstoðað okkur. Við munum meðal annars ræða þetta á yfirþjálfarafundi á morgun þar sem félögin munu koma. Fyrst og fremst er þetta bara ömurlega leiðinlegt."
Fyrr í mánuðinum kom annað leiðinlegt atvik upp þegar FH varð Íslandsmeistari í 2. flokki kvenna en það gleymdist hins vegar hjá KSÍ að mæta á staðinn með verðlaunapeninga og Íslandsmeistarabikar. Eysteinn segir að það þurfi að gera betur.
„Ég vil biðja félögin og leikmenn þessara liða afsökunar á þessum leiðinlegu mistökum. Við þurfum að gera betur. Við getum ekki verið viku eftir viku í því að biðjast afsökunar. Við þurfum að fara virkilega yfir þetta innandyra hjá okkur og það munum við gera," sagði Eysteinn.
Frábærum úrslitaleik lokið þar sem leikar enduðu 2-2 eftir venjulegan leiktíma og framlengingu.
— Max Koala (@Maggihodd) September 29, 2026
Eftir vítaspyrnukeppni unnu KR stelpur og urðu Íslandsmeistarar í B keppni þriðja flokks kvenna.
Eftir grátur og almennt svekkelsi við að tapa eftir vítaspyrnukeppni fengu… pic.twitter.com/F3PJrkM3c0

Þorsteinn Halldórsson, landsliðsþjálfari, veitir verðlaunapeninga og fyrir aftan hann er Eysteinn, framkvæmdastjóri KSÍ. Þessi mynd er ekki frá því í gær.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Þorvaldur Örlygsson, formaður KSÍ, og Eysteinn framkvæmdastjóri.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
