30.09.26 - 15:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Setur spurningamerki við ráðninguna á Xavi

Xavi.

Mynd: EPA

Wesley Sneijder í leik með hollenska landsliðinu.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Xavi.

Mynd: EPA
Wesley Sneijder, fyrrverandi landsliðsmaður Hollands, er ekki alveg sáttur við hvernig hollenska fótboltasambandið, KNVB, stóð að ráðningu Xavi sem nýs þjálfara landsliðsins.
Sneijder ræddi málið í þættinum Rondo á Ziggo Sport og sagði það einkennilegt að KNVB hefði áður lagt mikla áherslu á formlega þjálfaramenntun en virðist nú gera undantekningu fyrir Xavi.

„Mér fannst þetta merkilegt,“ sagði Sneijder og rifjaði upp samtöl sín við Nigel de Jong, tæknistjóra KNVB, um þjálfaramenntun.
Sneijder hafði sjálfur viljað sjá meira svigrúm fyrir fyrrverandi atvinnumenn í þjálfaranáminu. Hann hætti sjálfur í náminu árið 2021 eftir ágreining við KNVB um uppbyggingu þess. Xavi kláraði hins vegar A-, B- og Pro-þjálfararéttindi sín á aðeins fjórum vikum á meðan hann var enn leikmaður, í gegnum spænska fótboltasambadið.
„Mér finnst það einkennilegt, því áður var í raun sagt að allir þjálfarar yrðu að fara í gegnum fjögurra til fimm ára nám,“ sagði Sneijder.
Sneijder tekur þó fram að gagnrýni sín snúist ekki um Xavi sjálfan.
„Ég óska Xavi og KNVB alls hins besta. Mér finnst bara stefnan núna vera svolítið undarleg.“