Fotbolti.net
20.07.26 - 11:10
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Rogers í læknisskoðun hjá Chelsea - Keyptur á metupphæð

Rogers í læknisskoðun hjá Chelsea - Keyptur á metupphæð
Canon

Mynd: EPA

Morgan Rogers var í morgun mættur í læknisskoðun hjá Chelsea, tveimur dögum eftir að hann lauk leik með enska landsliðinu á HM þar sem England endaði í 3. sæti.

Rogers er 23 ára sóknarmaður sem Chelsea kaupir frá Aston Villa á 117 milljónir punda sem gerir hann að dýrasta enska leikmanni allra tíma. Hann verður 24 ára næsta sunnudag.

Hjá Aston Villa skoraði hann 31 mark í 125 leikjum á tveimur og hálfri leiktíð. Áður var hann á mála hjá Middlesbrough og MAnchester City en hann er uppalinn hjá WBA.
Aston Villa búið að samþykkja risatilboð í Morgan Rogers
TENGT EFNI

Aston Villa búið að samþykkja risatilboð í Morgan Rogers

Rogers er fjölhæfur leikmaður, getur spilað fyrir aftan fremsta mann eða á köntunum, hann gæti jafnvel spilað sem sóknarsinnuð átta á miðri miðju Chelsea.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.