Fotbolti.net
20.07.26 - 00:44
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Tók lykilmann af velli í fyrri hálfleik - Óttaðist rauða spjaldið

Auglýsing
Tók lykilmann af velli í fyrri hálfleik - Óttaðist rauða spjaldið
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Hertz
„Það vantaði upp á klókindin, vorum orðnar of þreyttar til að taka réttar ákvarðanir," sagði Jón Ólafur Daníelsson, þjálfari ÍBV, eftir leikinn gegn Þór/KA í dag.

Þór/KA vann 2-1 eftir að hafa komist í 2-0. ÍBV minnkaði muninn nokkuð snemma í seinni hálfleik en náði ekki að finna jöfnunarmark.
Lestu um leikinn: Þór/KA 2 - 1 ÍBV
Urðu leikmennirnir þreyttir út af vindinum?

„Nei, það er stutt síðan við spiluðum mjög erfiðan leik á móti Val. Það tekur svo líka vissan toll að ferðast þó maður megi aldrei væla yfir því. En ef þú ert þreyttur fyrir og ferð í erfiðan leik á móti liði sem er vel gírað og með frábært hugarfar, þá verður maður oft undir, því miður. Hvað vindinn varðar, það er nú eitthvað sem við Vestmanneyingar þurfum ekki að kvarta yfir."

Allison Grace Lowrey var tekin út eftir tæplega 40 mínútna leik. Hver er staðan á henni?

„Staðan á henni er ágæt, ég hafði hugsað mér að láta hana spila í 45 mínútur í dag svo hún gæti verið fersk á föstudaginn. Hún var orðin aðeins æst og ég bara farinn að óttast að hún fengi rautt spjald þannig ég hugsaði að það væri alveg eins gott að taka hana út af á þessum tímapunkti. Hún var eitthvað aðeins æst í dag, það var tekið hressilega á henni, ég ákvað því að hvíla hana nokkrum mínútum fyrr en áætlað var."

Allison var ekki komin með spjald en var aðeins farin að láta andstæðingana heyra það áður en hún fór af velli.

Framundan er undanúrslitaleikur gegn Þrótti á útivelli á föstudag.

„Staðan á okkur er bara góð, það eru allir leikir hörkuleikir og þetta verður enn einn hörkuleikurinn. Vonandi getum við boðið upp á skemmtilegan fótbolta og komum vel gíraðar til leiks."

Einungis fimm varamenn voru á bekk ÍBV í dag. Jón Óli ræddi um ástæðu þess í viðtalinu sem má sjá í heild sinni í spilaranum efst. Jón Óli segir þá frá því í viðtalinu að Jessica Hinton, erlendur leikmaður, fái félagaskipti í vikunni og verði með liðinu út tímabilið.
Allison var tekin af velli í fyrri hálfleik.

Allison var tekin af velli í fyrri hálfleik.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1FH11+2126
2Breiðablik11+1624
3Stjarnan11+921
4ÍBV12-120
5Þróttur R.11-313
6Fram12-1213
7Þór/KA12-512
8Grindavík/Njarðvík11-912
9Valur11-410
10Víkingur R.12-1210
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.