20.08.26 - 21:02
Brynjar Ingi Erluson
Alvarez vill ekki fara til Arsenal

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Julian Alvarez, framherji Atlético Madríd, hefur ekki áhuga á að ganga til liðs við Englandsmeistara Arsenal enda er hugur hans alfarið hjá Barcelona.
Afstaða Atlético hefur verið skýr í allt sumar. Félagið ætlar ekki að selja Alvarez til Barcelona.
Stjórnarmenn Atlético eru ósáttir við þá herferð sem Börsungar hafa farið í til að reyna að koma Alvarez úr jafnvægi og laða hann til félagsins, og því kemur ekki til greina að selja hann til Spánarmeistaranna.
Alvarez hefur reynt ýmislegt til að komast frá Atlético en án árangurs.
Félagið hefur hingað til þvertekið fyrir að selja hann í sumar en Mundo Deportivo segir afstöðuna hafa mýkst örlítið. Atlético gæti samþykkt sölu, en aðeins til Arsenal eða annars félags utan Barcelona.
Arsenal er í leit að sóknarmanni og hefur mikinn áhuga á Alvarez. Argentínumaðurinn vill hins vegar ekki fara þangað og hefur lítinn áhuga á að snúa aftur til Englands eftir veru sína hjá Manchester City.
Alvarez vill aðeins ganga til liðs við Barcelona og þar liggur vandamálið. Næstu tvær vikur leiða í ljós hvort Arsenal tekst að sannfæra hann en Atlético er sagt opið fyrir leikmannaskiptum.
Viktor Gyökeres hefur verið orðaður við brottför frá Arsenal og Barcelona gæti reynt að fá Svíann ef Alvarez reynist ekki í boði.
Diego Simeone, þjálfari Atlético, er sagður tilbúinn að taka Gyokeres í skiptum fyrir landa sinn.
Atlético verðmetur Alvarez á um 150 milljónir evra og þyrfti Arsenal því að slá bæði eigið félagsmet og kaupmet ensku úrvalsdeildarinnar til að fá hann.