Gylfi Tryggva meyr eftir stórsigur: „Ég elska þessar stelpur“

Gylfi Tryggvason var virkilega ánægður með frammistöðu Grindavíkur/Njarðvíkur í 4-0 sigri gegn Fram.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Gylfi Tryggvason var virkilega ánægður með frammistöðu Grindavíkur/Njarðvíkur í 4-0 sigri gegn Fram.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Grindavík/Njarðvík vann öruggan 4-0 sigur á Fram í 17. umferð Bestu deildarinnar í kvöld. Gylfi Tryggvason, þjálfari Grindavíkur/Njarðvíkur, var stoltur af sínu liði eftir leik.
„Fyrstu tilfinningarnar eru hamingja og stolt af liðinu. Mér fannst við frábærar í dag. Þetta var ein af okkar bestu frammistöðum,“ sagði Gylfi.
„Mér fannst við ótrúlega góðar frá fyrstu mínútu. Allan fyrri hálfleikinn var ég sáttur með.“
Fram breytti taktískt í hálfleik og Gylfi sagði að Grindavík/Njarðvík hefði þurft smá tíma til að aðlagast því.
„Fram breytir taktískt í hálfleik og kemur inn í seinni hálfleikinn með öðruvísi leikskipulag. Við þurftum kannski tíu, fimmtán mínútur til að aðlagast því en eftir það fannst mér við ná góðri stjórn á leiknum aftur.“
Grindavík/Njarðvík hefur nú unnið Fram þrisvar í sumar, fyrst 2-0, svo 3-0 og nú 4-0. Aðspurður hvort liðið væri með tak á Fram svaraði Gylfi einfaldlega:
„Greinilega.“
Hann vildi þó taka fram að Fram væri með öflugt lið og að úrslitin segðu ekki endilega alla söguna.
„Mér finnst við matcha vel á móti þeim. Fram er með öflugt lið og þær hafa staðið sig vel í sumar. Þær eru með mjög skemmtilega kosti sem gera þetta að góðu liði en mér finnst þeir kostir lenda vel á okkar kostum varnarlega.“
„Mér finnst 2-0, 3-0 og 4-0 ekkert lýsa þessu alveg, en mér finnst við matcha vel á móti þessu liði.“
Grindavík/Njarðvík hefur gengið í gegnum miklar breytingar á leikmannahópnum í sumar. Gylfi segir það ekki einfalt en hrósaði bæði nýju leikmönnunum og kjarnanum sem fyrir var.
„Við erum búin að gera langflest félagaskiptin út og inn í deildinni í sumar og það er mjög erfitt að vera með svona miklar breytingar.“
„Ég er fyrst og fremst mjög ánægður með stelpurnar, hvernig þær taka á móti nýjum leikmönnum og hvernig kjarninn sem hefur verið hér allan tímann nær að halda stemningunni góðri, bjóða þær velkomnar inn og sýna þeim hvernig okkar menning er.“
„Einn erfiðasti parturinn við þessar breytingar er að þú þarft að mynda tengingar upp á nýtt. Mér fannst við taka nokkur skref fram á við í þessum leik varðandi þessar tengingar og flæðið í leiknum okkar í dag var stórkostlegt.“
Gylfi fór fögrum orðum um hópinn sinn og segir auðvelt fyrir nýja leikmenn að koma inn í liðið.
„Ég gæti verið hérna í marga klukkutíma að telja upp allt sem mér finnst frábært við þennan hóp. Hópurinn er náttúrulega lykilatriði í þessu liði.“
„Ég elska þessar stelpur, elska þennan hóp. Þetta er einstakt lið.“
Framundan eru tveir leikir áður en deildinni verður skipt upp, auk bikarúrslitaleiksins síðar í sumar. Gylfi vildi þó ekki fara fram úr sér.
„Við erum bara í okkar verkefni að einblína á frammistöðu. Við töluðum aldrei um einhver úrslit í dag, við ætluðum bara að ná góðri frammistöðu.“
„Við náðum góðri frammistöðu og afleiðingin af þeirri frammistöðu er að við göngum héðan út með þremur stigum ríkari og 4-0 sigur á bakinu.“
„Við ætlum bara að fókusa á að vera geggjaðar á móti Víkingi og vonandi tekst það. Svo reynum við að vera geggjaðar á móti Val og svo reynum við bara að vera geggjaðar í hverjum einasta leik.“
„Það er mikið vaxtarhugarfar í þessu liði. Við förum bara og horfum á þennan leik og spyrjum: hvernig getum við orðið enn betri?“
Sjáðu viðtalið í heild í spilaranum hér að ofan.
