Fotbolti.net
20.08.26 - 20:57
Snæbjört Pálsdóttir

Ása Björg eftir mörkin tvö: Erum alltaf góðar á móti þeim

Auglýsing
Ása Björg Einarsdóttir skoraði tvö mörk og lagði upp eitt þegar Grindavík/Njarðvík vann Fram á JBÓ-vellinum.

Ása Björg Einarsdóttir skoraði tvö mörk og lagði upp eitt þegar Grindavík/Njarðvík vann Fram á JBÓ-vellinum.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Kvennaboltinn

Grindavík/Njarðvík vann öruggan 4-0 sigur á Fram á JBÓ-vellinum í kvöld í 17. umferð Bestu deildarinnar. Ása Björg Einarsdóttir var í aðalhlutverki hjá heimakonum og skoraði tvö fyrstu mörk leiksins.

Lestu um leikinn: Grindavík/Njarðvík 4 - 0 Fram

„Bara ógeðslega skemmtilegt. Mér finnst alltaf gaman að spila á móti Fram og mér fannst þetta bara hörkuleikur og bara skemmtilegur leikur,“ sagði Ása Björg eftir leik.

Grindavík/Njarðvík hefur haft gott tak á Fram í sumar. Liðin mættust fyrst í deildinni þar sem Grindavík/Njarðvík vann 2-0 og síðan í bikarnum þar sem liðið vann 3-0. Nú bættist 4-0 sigur við.

„Ég veit það ekki, við erum eiginlega alltaf góðar á móti þeim. Það er mjög gott,“ sagði Ása.

Hún kom Grindavík/Njarðvík yfir í fyrri hálfleik og bætti svo öðru marki við eftir hlé. Seinna markið var ekki endilega það hreinasta á ferlinum en Ása hafði litlar áhyggjur af því.

„Þetta var eiginlega bara smá heppni. Hún varði það inni en það er mark,“ sagði Ása.

Santa Sanija Vuskane bætti við þriðja markinu á 86. mínútu eftir stoðsendingu frá Ásu og Emersen Jennings setti svo punktinn yfir i-ið í uppbótartíma með sínu fyrsta marki fyrir félagið og á Íslandi.

Grindavík/Njarðvík á tvo leiki eftir í deildinni áður en henni verður skipt upp, auk þess sem liðið á stórt bikarverkefni framundan.

„Þetta leggst bara mjög vel í mig. Sérstaklega bikarleikurinn, það verður mjög spennandi leikur og það væri mjög gaman að taka þann leik líka.“

Liðið mætir Þrótti í bikarnum og stuðningsmenn Grindavíkur/Njarðvíkur fjölmenntu síðast þegar liðið mætti Fram í undanúrslitum Mjólkurbikarsins. Ása vill sjá sama stuðning í næsta stóra verkefni.

„Jú, heldur betur. Bara allir að mæta,“ sagði Ása aðspurð hvort liðið ætlaði ekki að fylla völlinn.

Næsti leikur Grindavíkur/Njarðvíkur í deildinni er gegn Víkingi Reykjavík en Ása segir liðið taka eitt verkefni í einu.

„Bara einn leik í einu. Næst er bara að pæla í Víking.“


Sjáðu viðtalið í heild í spilaranum hér að ofan.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.