20.08.26 - 21:46
Brynjar Ingi Erluson
Ísak Andri fékk tækifærið í bikarsigri - Jakob og félagar enn án sigurs

Ísak Andri byrjaði hjá Norrköping

Mynd: IFK Norrköping

Ísak Andri byrjaði hjá Norrköping

Mynd: IFK Norrköping
Ísak Andri Sigurgeirsson var í fyrsta sinn í byrjunarliði Norrköping á þessu tímabili er liðið vann 2-1 sigur á Vasalund í sænska bikarnum í kvöld.
Stjörnumaðurinn sneri aftur til Norrköping í sumar eftir lánsdvöl hjá Viborg í Danmörku.
Hann hafði komið inn af bekknum í síðustu fjórum deildarleikjum Norrköping en fékk loks tækifæri í byrjunarliðinu í bikarnum.
Hinn 19 ára gamli Kylian Seka kom Norrköping yfir á 13. mínútu en heimamenn í Vasalund jöfnuðu sjö mínútum síðar.
Leikurinn fór í framlengingu þar sem Elias Jemal skoraði sigurmarkið og tryggði Norrköping sæti í riðlakeppni bikarsins sem fer fram á næsta ári.
Jakob Gunnar Sigurðsson lék allan leikinn með Hilleröd sem tapaði 1-0 fyrir Vendsyssel í dönsku B-deildinni.
Hilleröd er enn án sigurs í deildinni og situr í næstneðsta sæti með eitt stig eftir fimm leiki.