Fotbolti.net
20.08.26 - 20:57
Snæbjört Pálsdóttir

Anton Ingi ósáttur í Njarðvík: Ekki gott á Bestu deildar leveli

Auglýsing
Anton Ingi Rúnarsson var ósáttur með aðstæður á vellinum eftir 4-0 tap Fram gegn Grindavík/Njarðvík en viðurkenndi að heimakonur hefðu haft gott tak á Fram í sumar.

Anton Ingi Rúnarsson var ósáttur með aðstæður á vellinum eftir 4-0 tap Fram gegn Grindavík/Njarðvík en viðurkenndi að heimakonur hefðu haft gott tak á Fram í sumar.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Kvennaboltinn

Fram tapaði 4-0 gegn Grindavík/Njarðvík í 17. umferð Bestu deildarinnar í kvöld. Anton Ingi Rúnarsson, þjálfari Fram, sagði úrslitin ekki endilega gefa rétta mynd af leiknum en var ósáttur með hvernig hlutirnir þróuðust.

Lestu um leikinn: Grindavík/Njarðvík 4 - 0 Fram

„Mér fannst þetta bara vera nokkuð jafnt í fyrri hálfleik. Markið sem þær skoruðu var kannski frekar ódýrt af okkar hálfu. Hún slapp mjög auðveldlega í gegn og skoraði,“ sagði Anton eftir leik.

„Bæði lið voru svolítið að kýla bolta fram og aðstæðurnar voru bara þannig. Það var skraufþurr völlur og ekki vökvað.“

Anton var gagnrýninn á aðstæður vallarins.

„Það er ekki gott á Bestu deildar leveli að vera ekki með vökvun og kannski smá standard fyrir leiki.“

Hann velti því svo upp hvort völlurinn yrði í sama ásigkomulagi þegar karlalið Njarðvíkur spilar næst á vellinum.

„Ég hlakka eiginlega bara til að sjá leikinn hjá karlaliðinu í Njarðvík á laugardaginn, hvort völlurinn verði vökvaður þar á móti Völsungi eða verði skraufþurr eins og hann var í dag.“

Grindavík/Njarðvík hefur unnið Fram þrisvar í sumar, fyrst 2-0, svo 3-0 í bikarnum og nú 4-0 í deildinni. Anton viðurkenndi að liðið hefði haft gott tak á Fram.

„Já, ég hugsa að þær séu bara með fínasta tak á okkur. Þær eru mjög physical þarna aftast. Þær eru með þrjá helvíti sterka tanka í öftustu línu og þetta er kannski eina liðið sem matchar okkar physical leikmenn fram á við.“

„Við höfum ekki náð að brjóta þær aftast í sumar þannig að það má alveg segja það. Það er búið að vera smá tak á okkur.“

Fram á tvo leiki eftir áður en deildinni verður skipt upp og liðið er í baráttu um efri hlutann. Anton segir stöðuna þó ekki lengur alfarið í höndum Fram.

„Við erum allavega ekki í honum núna og þetta er kannski ekki í okkar höndum að vera í efri hlutanum. Það eina sem við getum gert er að vinna þessa tvo leiki og ná í sex stig. Ef það skilar okkur í efri hlutann þá væri það bara mjög gott.“

„Það hefur verið séns í öllum leikjunum sem við höfum verið að spila í sumar. Við höfum oftast verið inni í þessu og 4-0 tap í dag er kannski ekki alveg rétt mynd af hvernig leikurinn var en hann endaði svona.“

„Næstu tveir leikir eiga alveg að vera mjög góðir möguleikar fyrir okkur til að stríða hinum liðunum. Við höfum spilað hörkuleiki við þau í sumar þannig að við verðum að stela stigum þar allavega.“

Sjáðu viðtalið í heild í spilaranum hér að ofan.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.