20.08.26 - 07:55
Elvar Geir Magnússon
Infantino hefur misst stuðning fimm af átta varaforsetum FIFA

Csanyi sendi Infantino bréf og lýsti því yfir að hann hefði misst traust til hans.

Mynd: EPA

Infantino var viðstaddur úrslitaleik Afríkukeppni kvenna á dögunum.

Gianni Infantino hefur misst stuðning frá fleirum af varaforsetum FIFA en Sandor Csanyi, sem er yfir ungverska fótboltasambandinu, hefur gagnrýnt forystu forsetans.
Csanyi sendi Infantino bréf og lýsti því yfir að hann hefði misst traust til hans og segir að brottrekstur Kevin Lamour, rekstrarstjóra FIFA, hafi fyllt mælinn. Lamour gagnrýndi Infantino opinberlega og var látinn taka pokann sinn.

TENGT EFNI
Rekinn frá FIFA eftir að hafa gagnrýnt Infantino
Infantino hefur fengið gagnrýni úr öllum áttum eftir áætlanir um að hleypa fjárfestum að heimsmeistaramótinu og öðrum innviðum FIFA. Tillagan mætti gríðarlegri andstöðu um allan heim og var dregin til baka.
Guardian fjallar um að fimm af átta varaforsetum sambandsins hafi snúið baki við Infantino. Aleksander Ceferin forseti UEFA, Victor Montagliani hjá Concacaf og Sjeik Salman bin Ebrahim al Khalifa frá asíska sambandinu hafa allir lýst afstöðu sinni, líkt og Debbie Hewitt hjá enska fótboltasambandinu.
Af varaforsetum FIFA eru það aðeins Alejandro Domínguez frá Suður-Ameríku, Patrick Motsepe frá Afríku og Lambert Maltock frá Eyjaálfu sem styðja Infantino.