Fotbolti.net
19.08.26 - 22:40
Ívan Guðjón Baldursson

Éderson hissa: Læknisskoðunin gekk vel

Éderson hissa: Læknisskoðunin gekk vel
Canon

Mynd: EPA

Brasilíski miðjumaðurinn Éderson var nálægt því að ganga til liðs við Manchester United í sumar en Rauðu djöflarnir hættu við skiptin eftir að Brassinn fór í læknisskoðun hjá félaginu.
Steinhissa á Man Utd
TENGT EFNI

Steinhissa á Man Utd

Talið var að Éderson hafi fallið á hluta af læknisskoðuninni en það kom stjórnendum Atalanta gríðarlega á óvart, sem og leikmanninum sjálfum.

Man Utd keypti í staðinn samlanda hans Andrey Santos úr röðum Chelsea og Youri Tielemans frá Aston Villa.

„Ég hef enga hugmynd um hvers vegna félagaskiptin gengu ekki í gegn. Það hefur alltaf verið áhugi á mér frá öðrum félagsliðum og ég hefði getað skipt yfir til annars félags á Englandi, en ég vildi það ekki," segir Éderson.

„Læknisskoðunin gekk vel svo ég skil ekki hvað vandamálið var. Ég hef verið fastamaður í byrjunarliðinu hérna í Atalanta síðustu fjögur ár."

Éderson hefur misst af 14 deildarleikjum í Serie A á fjórum árum hjá Atalanta.
Éderson hissa: Læknisskoðunin gekk vel
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.