18.08.26 - 09:47
Elvar Geir Magnússon
Rekinn frá FIFA eftir að hafa gagnrýnt Infantino

Frá höfuðstöðvum FIFA í Sviss.

Mynd: EPA

Gianni Infantino, forseti FIFA.

Mynd: EPA

Frá höfuðstöðvum FIFA í Sviss.

Mynd: EPA
Kevin Lamour hefur misst vinnuna en hann var framkvæmdastjóri rekstrarsviðs FIFA. Lamour gagnrýndi Gianni Infantino, forseta FIFA, opinberlega og hefur nú verið látinn fara.
Lamour gagnrýndi harðlega hinar misheppnuðu áætlanir Infantino um að bjóða einkaaðilum að kaupa hlutdeild í viðburðum sambandsins, þar á meðal HM.

„FIFA þakkar Kevin fyrir hans tvö ár og óskar honum þess besta í framtíðinni," segir í yfirlýsingu FIFA.
Í síðasta mánuði sagði Lamour að áætlanirnar umdeildu væru verkefni eins manns og sagði að nú væri rétti tíminn til að æðstu menn fótboltans myndu spyrja sig réttu spurninganna og taka réttar ákvarðanir.
„Forsetinn verður að sameina fólk og hvetja það. Í dag upplifum við hið gagnstæða," sagði Lamour meðal annars en hann virtist gera sér grein fyrir því hverjar afleiðingar orða sinna gætu orðið.
„Ef þetta mun þýða það að ég missi vinnuna þá verður bara svo að vera. Ég mun skilja og virða þá ákvörðun. Að minnsta kosti mun ég sofa vel í nótt," sagði Lamour.
Fyrr í þessum mánuði boðaði Infantino til krísufundar í Marokkó en Lamour var ekki boðið á þann fund. Eftir fundinn hlaut Infantino stuðning stjórnar FIFA.