20.08.26 - 07:00
Ívan Guðjón Baldursson
Rashford biður sérfræðingana um frið

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Marcus Rashford endurbirti klippu úr vinsælum fótboltahlaðvarpsþætti og nýtti tækifærið til að taka undir með Jamie Carragher og þakka honum fyrir orð sín.

TENGT EFNI
„Carrick mun ná því besta úr Rashford"
Rashford er kominn aftur til Manchester United eftir 18 mánaða fjarveru og gæti fengið að spila aftur með aðalliðinu undir stjórn Michael Carrick. Rashford er 28 ára gamall og með tvö ár eftir af samningi, en hann hefur leikið á láni hjá Aston Villa og Barcelona undanfarin misseri.
Nafn Rashford kemur oft fyrir í fyrrnefndum hlaðvarpsþáttum og þegar Gary Neville ætlaði að minnast á Rashford í síðasta þætti var Carragher fljótur að grípa í taumana.
„Ó, hvað finnst okkur um Marcus Rashford?" spurði Neville og var Carragher fljótur að svara.
„Getum við gert einn þátt án þess að minnast á Rashford? Hættu þessu, í guðanna bænum! Þetta er eins og með Trent (Alexander-Arnold). Það mætti halda að við séum með Trent hornið og Rashford hornið sem lið í þáttunum okkar," sagði Carragher af mikilli ástríðu og með dass af blótsyrðum, sem vakti mikla kátínu meðal viðstaddra.
Rashford birti þessa klippu og tjáði sig um hana. „Takk, Jamie. Það væri frábært að geta sett hausinn niður og einbeitt mér að fótbolta án þess að nafn mitt sé í fjölmiðlum á hverjum degi," skrifaði Rashford á samfélagsmiðlinum X.

Thanks, Jamie. It would be great to be able to get my head down and play football without my name being mentioned every day ???? https://t.co/GTqrKhbZEE
— MR (@MarcusRashford) August 19, 2026

Mynd: EPA

Mynd: EPA